Skýrsla um rannsóknarframlög til háskóla.
(1204033)
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
25.03.2014 | 39. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Skýrsla um rannsóknarframlög til háskóla. Kristín Kalmansdóttir og Þórir Óskarsson frá Ríkisendurskoðun komu á fund nefndarinnar og ræddu svar mennta- og menningarmálaráðuneytis við fyrirspurn nefndarinnar og stöðu málsins. Formaður lagði til að ráðuneytið yrði upplýst um afstöðu Ríkisendurskoðunar og umfjöllun nefnarinnar um málið lokið. Var það samþykkt. |
11.03.2014 | 37. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Rannsóknarframlög til háskóla - skýrsla Ríkisendurskoðunar. Formaður gerði nefndinni grein fyrir svarbréfi mennta- og menningarmálaráðuneytis til nefndarinnar um hvernig brugðist hefði verið við athugasemdum í skýrslu Ríkisendurskoðunar. Samþykkt að senda svarbréfið til Ríkisendurskoðunar og óska eftir afstöðu stofnunarinnar til þess. |